Jæja, hvað segir fólk í dag ;o)
26.3.2009 | 13:44
Héðan að norðan er barasta allt það besta að frétta .... núna bara snjóar og snjóar og snjóar og svo snjóar bara meira thíhí hehe....ekki að kvarta , neee, alls EKKI sko , bara ánægð með þetta, því þá safnast bara meiri snjór í fjallið hehe ..... humm, já eða þannig sko , það er víst lokað í fjallinu í dag , vegna "veðurs" hahaha
En að öðru, þá gengur allt sinn vanagang hérna hjá okkur, Berglind og Elva í skólanum, styttist í árshátíð hjá þeim báðum , sem verður bara gaman að sjá, og svo eru náttla páskarnir á næsta leiti.... með "öllum" þeim sykri sem þá tíðkast hehe
Jæja, best að halda áfram að vinna hehe.... það gerist vís ekkert af sjálfum sér hérna í "Ölpunum"
Bið að heilsa í bili
Kv ég
Athugasemdir
Þú ert nú alveg húkt á þessu fjalli þínu þarna norðan heiða,gott að fólk á sér áhugamál,EN!!!! hvað gerir þú þá á sumrin humm ertu kannski í jurtasöfnun???,,smá pælingar bara ekkert annað mín kæra..
Knús á þig vinkona og hafðu það sem best
Guðný Einarsdóttir, 29.3.2009 kl. 12:40
Blessuð hehe .....
Hei, fjallið er alveg að segja sitt ..sko , það er ekkert búið að vera neitt smá gott færi , og hrikalega mikið af fólki að koma frá Rvk að koma að sunnan , svo það erum ekker bara "við" hérna norðan heiða sem örkum í fjallið um helgar hehe.....
....varstu kanski að spá í að mæta thíhí hehe........
Það er nú góð spurning hvort maður fari ekki bara í það að safna jurtum í sumar hahaha..... er það ekki í "tísku" annars hehe .....
Nei, í sumar verður bara útilegudótið tekið fram og farið í útilegur og svo verður bara vinna, tek ekki frí fyrren í byrjun ágúst , en hvernig verður hjá þér mín kæra á að "skrallast" eitthvað ?
Jæja sendi bara knús á þig til baka og hafðu það gott
Bæ í bili
Inga Jóna Traustadóttir, 8.4.2009 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.