Daginn blogheimur ;o)
20.11.2008 | 15:11
Það lítur út fyrir að það sé SNJÓR í kortunum yhaaaaaaaaaaaa......................... Núna bara kyngir niður snjó, snjó og snjó .....geðveikt , meiriháttar og enn geðveikara að fá loks snjó ...uff, þið heldið eflaust að ég sé orðin "klikkuð" núna hehehe ... en það er fjarri lagi , ég vil bara hafa snjó og það mikið af honum , svo einfallt er það ...... En nóg um það í bili !!!
Hef svo sem ekki mikið að segja núna , lífið gengur sinn vanagang og suðurferð í "planinu" á morgun.... það er sundmót hjá Svavari í Reykjavík núna um helgina , krakkarnir fóru í flug núna áðan og keppt verður í Laugardalslauginni ....vona að hann taki undir sig "stökk" og valti yfir allt og alla thíhí ..... nee má ekki segja svona , vona að þau standi sig vel ..... svo á sunnudagskvöld er uppskeruhátið á Hótel Íslandi , og þau greyin verða að keppa til 18.00 á sunnudeginum , en húsið opnar kl;19.30 ...ufff, það verður strembið ....og svo í flug morguninn eftir kl; 07.45 ahhhhh......... Ekki vildi ég vera þau ...... ...... og þreytt verða þau á mánudagsmorgun í vélinni á norðurleið ....uff ... ef ekki þá bara sofandi .
Jæja , nóg komið af blaðri í bili hehehe .....
Meira síðar .....
Kv "æ" þessi flotta í snjónum fyrir norðan hehe
Athugasemdir
Á kannski að skella sér austur fyrir fjall líka??
Hafðu það gott blúndukrúttið mitt..
Kveðja hún ég
Guðný Einarsdóttir, 21.11.2008 kl. 07:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.